
Velkomin í Orka Studio!
Fagleg þjálfun í notalegu umhverfi
Mömmuþjálfun
Meðgönguþjálfun
Almenn þjálfun fyrir konur
Signed in as:
filler@godaddy.com

Mömmuþjálfun
Meðgönguþjálfun
Almenn þjálfun fyrir konur

Okkar markmið er að Orka Studio sé vettvangur þar sem konur geta leitað til þegar kemur að faglegri þjálfun og fræðslu undir leiðsögn sjúkraþjálfara í notalegu umhverfi. Við erum alltaf að bæta okkar þekkingu á kvenheilsu með reynslu og námskeiðum. Við höfum ástríðu fyrir því að veita kúnnum okkar öryggi í þjálfun og hafa gaman af því að hreyfa sig í leiðinni.

Hjá Orka Studio bjóðum upp á fjölbreytta hópþjálfun fyrir konur. Það eru Fimm hópar í boði: Meðgönguþjálfun, Mömmuþjálfun grunnur, Mömmuþjálfun framhald, KvenOrka og Orku Klúbburinn. Við gerum okkur besta til að mæta þörfum hverrar og einnar konu á mismunandi tímbilum í lífinu.

Þjálfun Orka Studio fer fram í Síðumúla 28 þar sem við erum með aðstöðu hjá Kjarna. Aðgengi er gott og engir stigar, hægt að geyma vagna úti beint fyrir utan salinn. Bílastæði eru beint fyrir utan, í kringum húsið og við húsnæðin í kring. Ein sturta og lítil skiptiaðstaða í boði fyrir þær sem vilja nýta sér.
Síðumúli 28, Reykjavík, Iceland