Signed in as:
filler@godaddy.com
Signed in as:
filler@godaddy.com
Orku Klúbburinn; fyrir allar konur sem vilja hreyfa sig og æfa hjá Orka Studio utan vinnutíma.
Skemmtileg keyrsla þar sem við blöndum saman styrktar- og þolþjálfun, barre og pilates æfingar, hreyfiflæði og bandvefslosun.
Tímasetningar:
- mánudagar kl. 20:30-21:20 Orku flæði
- miðvikudagar kl. 6:40-7:30 Orku stöðvar
- fimmtudagar kl. 17:00-17:50 Orku stöðvar
- föstudagar kl. 6:40-7:30 Orku lotur
- föstudagar kl. 12:10-13 Orku lotur
5 áskriftarleiðir í boði! 1 mánaðauppsagnarfrestur í áskrift.
Síðumúli 28, Reykjavík, Iceland
Innifalið: Þjálfun 2-4x í viku, aðgangur að lokuðum Facebook-hópi, heimaæfing 1x í viku og hægt að mæta í aðra hópa í Orka Studio eða Open gym ef þú missir af tíma. ATH börn eru ekki leyfð með í þessa tíma. Næsta námskeið hefst 10. ágúst.

,,Besta líkamsrækt sem ég hef stundað. Kann virkilega vel að meta hvað þið gefið ykkur góðan tíma í að leiðbeina manni svo maður sé að beita sér rétt og alltaf tilbúnar með góð ráð ef einhver æfing hentar ekki. Svo skemmir alls ekki fyrir hvað það er frábært andrúmsloft í tímunum og góð orka í kringum ykkur. Hlakka til að skrá mig í áskrift hjá ykkur :) "
-Íris Rut
,,Mæli með Orku fyrir allar konur í lífi mínu því þjálfunin hjá ykkur er svo frábær😍 Þér er alltaf mætt þar sem þú ert, ekki sett pressa á að pína þig en samt á sama tíma hvatning til að þyngja lóðin og styrkjast. Ég finn hvað ég er orðin sterk aftur, hlakka alltaf til að mæta og taka skemmtilega æfingu með ykkur."
,,Elska æfingarnar og orkuna! Finnst geggjað að geta mætt sjálfri mér þar sem ég er þann daginn þar sem æfingarnar bjóða alltaf upp á miskrefjandi útfærslur."
,,Ég er virkilega ánægð með námskeiðið! Var hjá ykkur í mömmuhóp og saknaði þess að mæta þegar ég fór aftur að vinna. Þess vegna var ég fljót að skrá mig í nýju tímana. Mér finnast æfingarnar skemmtilegar og hæfilega krefjandi og þið báðar frábærar og með góða nærveru. Ég er jafnframt að sjá árangur hjá mér sem ég bjóst ekki við, held ég hafi aldrei verið í betra formi en nú eða liðið betur í eigin skinni og það besta er að það gerðist bara án þess að ég væri eitthvað að pæla mikið í því :)"
,,Þið eruð heimsins bestar! Búin að koma á grunn- og framhaldsnámskeið, svo kvenorku og orkuklúbb og mér hefur aldrei liðið jafn vel í líkamanum! Svo þægilegt að æfa hjá ykkur og hlakka til að koma aftur eftir sumarfrí!"
,,Mjög ánægð með fjölbreyttar og skemmtilegar æfingar og peppið sem þið gefið frá ykkur og er smitandi."
,,Frábærir þjálfarar. Þær gefa sér tíma til að gera mismunandi útgáfur af æfingum og leiðbeina, þannig maður getur æft á sínum forsendum. Æfingarnar eru fjölbreyttar og skemmtilegar."